Durant með sigurkörfuna gegn Dallas | Óvæntur sigur Orlando Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. apríl 2012 09:43 Durant ásamt James Harden í Oklahoma í gærkvöldi. Nordic Photos / Getty
Glen Davis lét menn heyra það í gærkvöldi.Nordic Photos / Getty Kevin Durant reyndist hetja Oklahoma Thunderbirds í eins stigs sigri á Dallas Mavericks í fyrstu viðureign liðanna í úrslitakeppninni. Durant skoraði sigurkörfuna 1,5 sekúndum fyrir leikslok. Leikurinn í Oklahoma var æsispennandi og Dirk Nowitzki kom Dallas stigi yfir með tveimur vítaskotum níu sekúndum fyrir leikslok. Það var hins vegar nægur tími fyrir Durant að tryggja heimamönnum sigurinn. Undir mikilli pressu varnarmanna Dallas náði hann skoti sem tók sinn tíma að fara ofan í. Af hringnum skoppaði knötturinn í spjaldinu áður en hann hafnaði í körfunni við mikinn fögnuð heimamanna. Russel Westbrook skoraði mest allra eða 28 stig en Durant kom næstur heimamanna með 25 stig. Hjá Dallas skoraði Nowitzki 25 stig, þar af 11 á síðustu fimm mínútunum. Þau dugðu þó ekki til. Oklahoma leiðir í einvíginu 1-0.Orlando kom öllum á óvart gegn Indiana Orlando Magic, sem leikur án Dwight Howards, kom öllum á óvart og vann 81-77 stiga sigur í fyrstu viðureign sinni gegn Indiana Pacers sem fram fór í Indianapolis í gærkvöldi. „Þið eruð eitt stórt spurningamerki," öskraði Glen Davis miðherji Orlando til áhorfendaskarans þegar hann yfirgaf leikvöllinn. Davis tók stöðu Howard og stóð sig vel. Skoraði 16 stig og tók 13 fráköst. Orlando verður án Howard í úrslitakeppninni en miðherjinn stæðilegi gekkst undir uppskurð á baki á dögunum. Orlando leiðir í einvíginu 1-0 en næst verður leikið í Flórída-fylki.
NBA Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik - Stjarnan | Ná Blikar að halda toppsætinu? Fótbolti Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira